Verið velkomin á þessa vefsíðu sem er tileinkuð Hlöðuvík á Hornströndum. Tilgangur síðunnar er að vera upplýsinga- og kynningarveita fyrir þessa litlu „paradís“ á Hornströndum þar sem hægt verður að nálgast upplýsingar um fólkið sem þar lifði, náttúruna og hvað það annað sem tengist þessu svæði. Hópur manna og kvenna sem þangað eiga ættir sínar að rekja ásamt vinum og kunningjum hafa sinnt uppbyggingu og viðhaldi húsa og náttúru í víkinni. Þeim bræðrum Hallvarði og Magnúsi Guðlaugssonum, sem fæddir er í Hlöðuvík verður seint þakkað það frumkvöðlastarf og áræðni að hefja byggingu sumarhúss árið 1974 á þessum afvikna stað.